Nú langar mig á Ólafsvöku...

...og ekki orð um það meir!

Til þess að fanga stemningu Ólafsvöku er þó hægt að hlusta á Rás tvö. Akkúrat núna var að klárast týpískur Föroyskur dansur.Smile Svo er reyndar líka verið að senda út frá Bræðslunni - miklum tónleikum austur á Magna-firði.

Þar er besti vinur Bubba að fara að stíga á stokk innan tæprar klukkustundar. Að sjálfsögðu verða mín eyru viðstödd þann performans.

Á næsta ári verður síðan farið á Ólafsvökuna, það er engin spurning!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef stundum farið á Ólafsvökuna.  Íslenskt samferðafólk mitt er ávalt sammála því að upplifunin sé líkust því að maður fari í trans.  Þegar 10 - 20 þúsund manns (fjöldinn fer eftir veðri) sameinast í einum risastórum hringdansi um miðnætti á Ólafsvökudeginum þá upplifir maður alvöru múgsefjun.  Hver einstaklingur sameinast í einni hópsál þar sem 10 - 20 þúsund munnar syngja Orminn langa í 26 - 28 mínútur samfleytt. 

Jens Guð, 28.7.2007 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband