9.3.2007 | 23:24
,,Þetta er farið að verða nokkuð langt,..."
....umlaði fraukan. ,,Já, er ekki það? Það er von þér segið það. Þetta er ljóta veðrið? Er yður illt?"
Svo linaði hún á tökunum, og ég herti á augnablikunum með örari hreyfingum. Loks kom það. Hvílík óviðjafnanleg sæla! Svo var allt búið. En sá viðbjóður! Klukkan tólf í nótt skulu lífsreglurnar í gildi, allir paragrafarnir, líka I. paragraf a. Það var eitthvað annað en mér þætti vænt um hana lengur. Er ástin svona í praksís?
Ætli Guðbjörg Hildur Kolbeins hefði ekki tekið Þórberg á teppið fyrir frásögnina af Hólavallagarðsdrættinum fræga? Mig grunar að svo hefði verið!
Ein snilldarmynd af kallinum fyrst hann á afmæli á mánudaginn:
Grettukeppnissérfræðingar nútímans eiga ekkert í Þórberg Þórðarson!
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 19.4.2007 kl. 22:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.