19.5.2007 | 13:55
Sleeping with the enemy.....
Jæja. Þá er það ljóst að ný ríkisstjórn er í kortunum og rífandi gangur í viðræðunum. Í stað B-deildar Íhaldsins kemur nú minn flokkur Samfylkingin inn á stjórnarheimilið. Sem markar auðvitað tímamót því vér vinstrimenn höfum ekki átt aðild að neinni ríkisstjórn síðan 1995. Reyndar var Alþýðuflokkurinn ekki sérlega vinstrisinnaður í Viðeyjarstjórninni og því má segja að vinstrimenn séu að koma inn í Stjórnarráðið í fyrsta sinn í sextán ár. Sem kunnugt er sátu gömlu A-flokkarnir saman í farsælli stjórn Steingríms Hermannssonar 1988 til 1991.
En þessi ríkisstjórnaraðild okkar núna - ef af verður - er með allt öðrum formerkjum en mig dreymdi um. Planið var jú að fella ríkisstjórnina og taka við stjórn landsins ásamt VG og Frjálslyndum í Kaffibandalaginu - nú eða styðjast við Framsókn ef Frjálslyndir yrðu ekki stjórntækir.
Því miður hefur atburðarásin að loknum kosningum gert vinstri stjórn ólíklega. Í fyrsta lagi er Framsóknarflokkurinn laskaður eftir afhroðið um síðustu helgi og því hollast fyrir hann að fara í stjórnarandstöðu. Þó má ráða af fréttaskýringum að B-deildin hafi viljað halda áfram með Íhaldinu og boðið fækkun sinna ráðherrastóla niður í fjóra. En Geir hafði víst ekki áhuga og þess vegna eru Framsóknarmenn bitrir og sárir núna. Á sumum bloggsíðum má samt finna létti margra þeirra með að losna við Íhaldið og geta farið að byggja sig upp að nýju.
Nú hefur Jón Sigurðsson talað um að bjóða Ingibjörgu Sólrúnu forsætisráðuneytið í vinstri stjórn ef uppúr slitnaði hjá henni og Geir Hilmari. Það er allt gott og blessað, en mikið hefði ég viljað sjá þetta tilboð strax eftir kosningar. Þá hefði Jón getað beðist lausnar fyrir sína menn og lagt til við Ólaf Ragnar að Ingibjörg fengi umboðið til að mynda stjórn Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknar. Og málið væri dautt.
Því miður hefur litli bróðir á vinstri vængnum - VaffGé - ekki makkað rétt í skúespilinu. Kosningabaráttan hjá þeim var furðu daufleg og strax að kosningum loknum komu þeir fram og breimuðu ákaft utaní Íhaldinu - til dæmis var Ögmundur með svo áköf bónorð til Sjallanna í Silfrinu á sunnudag að maður saup hveljur. Síðan fór Steingrímur Jóhann að gefa afslátt af hinum og þessum stóriðjustoppum og augljóst hvert hugur hans stefndi, hvað sem leið öllu tali hans um að þeir hefðu ,,farið að leikreglum" í öllu stjórnarmyndanabrasinu.
Ekki bætti úr skák forkastanleg framkoma þessa formanns ,,Rauðu Framsóknar" í garð ,,Grænu Framsóknar" nú fyrr í vikunni (það vita jú allir sem vilja vita, að Steingrímur Joð er ekki sósíalisti, heldur framsóknarmaður). Að koma með fáránlega kröfu til Jóns Sigurðssonar um afsökunarbeiðni vegna auglýsinga Framsóknar í kosningabaráttunni bendir til þess að Steingrímur hafi ekki mikinn húmor fyrir hlutunum. Var ekki einhver að líkja þessu við viðbrögð múslima í Danmörku við skopmyndunum af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum?
Steingrímur má ekki vera svona viðkvæmur. Án þess að ég ætli að verja Framsóknarmenn, þá voru það Vinstri grænir sem hófu þessa neikvæðu kosningabaráttu sem síðan varð að skítkasti milli þessara tveggja flokka - einkum ungliðahreyfinganna. Og nú vill Steingrímur ólmur setjast með Jóni Sigurðssyni í vinstri stjórn! Afsakiðið meðanað ég æli....
Því miður fór svo að eini raunverulegi möguleiki vinstrimanna á að setjast í stjórn í þetta skiptið var sá kostur sem nú er í spilunum. Að vísu hefði Geir alveg getað talað við VG en Samfylkingin er á hinn bóginn stærri og meirihluti vinstrimanna í landinu er innan hennar vébanda.
Nú þurfum við að ná eins miklu út úr stjórnarsáttmála við Íhaldið og við mögulega getum. Það eru vissulega blendnar tilfinningar að setjast í stjórn með höfuðóvininum. Að ég tali nú ekki um að vera skyndilega í liði með Sigurði Kára, Birgi Ármannsyni og Árna Johnsen!!!!
Stjórn með Sjálfstæðisflokknum gengur á vissan hátt gegn tilvistarrökum Samfylkingarinnar, einsog Pétur Tyrfingsson sagði áðan í Vikulokunum. Ljóst er að forysta okkar þarf að berjast með oddi og egg fyrir okkar málstað í viðræðunum við Geir og félaga. Ekki síst til þess að tryggja víðtækan stuðning allra í Samfylkingunni - sérstaklega vinstri armsins.
En haldi Ingibjörg og öll samninganefnd flokksins vel á spöðunum þarf ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum alls ekki að skaða flokkinn að fjórum árum liðnum. Við megum ekki gleyma því að Samfylkingin er ekki gamli Alþýðuflokkurinn þótt Vinstri grænir og Framsóknarmenn séu farnir að tala um nýja Viðeyjar(-Baugs-)stjórn. Samfylkingin spannar stærra litróf á vinstri vængnum - allt frá hægrikrötum yfir í róttæka sósíalista sem vilja hafa áhrif í Samfylkingunni frekar en að vera í krónískri stjórnarandstöðu innan vébanda VG. Í þingflokki Samfylkingar eru fyrrverandi Allaballar og Kvennalistakonur, Alþýðuflokksmenn og Þjóðvakar. Svo má ekki gleyma þeim sem hafa aðeins verið í Samfylkingunni og eiga sér enga fortíð í forverum hennar.
Ég set samt ýmsa fyrirvara við að styðja stjórn með Íhaldinu. Þetta eru helstu forsendur fyrir stuðningi mínum:
1. Raunverulegt átak verði gert í velferðarmálum - einkum í málefnum barna, ungmenna, eldri borgara, geðfatlaðra og almennt í málefnum fjölskyldunnar. Gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu verði endurskoðuð og dregið úr henni.
2. Engin skólagjöld! Engin skólagjöld!
3. Uppskurður og afnám miðstýringar í heilbrigðiskerfinu án þess að rekstur innan þess sé einkavæddur.
4. Skattleysismörk hækkuð einsog svigrúm leyfir en hugsanlega mætti fjármagna það með nýjum hátekjuskatti sem legðist á raunverulegar hátekjur en ekki millitekjur einsog gamli hátekjuskatturinn gerði.
5. Fjármagnseigendum sé gert að reikna sér endurgjald (laun) af ákveðnum hluta innkomu sinnar og greiði almennan staðgreiðsluskatt af þeim - líka útsvar til sveitarfélaga. Að öðru leyti megi fjármagnstekjuskattur vera 10% en skoða skuli frítekjumark af almennum sparnaði fólks.
6. Ríkisútvarpið verði ekki selt en megi vera ohf. Fjármögnun þess verði breytt úr nefskatti yfir í rífleg framlög af fjárlögum. Nefskattar eru óréttlátir (einsog til dæmis Framkvæmdasjóður aldraðra).
7. Afnumin verði fyrirhuguð gildistaka nýju vatnalaganna og eldri lög látin gilda. Einkavæðing vatns kemur ekki til greina!
8. Landsvirkjun verði áfram í eigu ríkisins og áhrif af markaðsvæðingu orkugeirans verði milduð.
9. Íbúðalánasjóður verði áfram í eigu ríkisins. Átak verði gert í húsnæðismálum, til dæmis kaupleiguíbúðir, fleiri leiguíbúðir og auðveldari staða þeirra sem vilja kaupa sér íbúð. Húsnæðisbætur komi í stað vaxtabóta og húsaleigubóta.
10. Opnað verði fyrir nýliðun í sjávarútvegi (frjálsar veiðar smærri báta á einhverjum tegundum) en kvótakerfið haldi sér í meginatriðum. Uppræta þarf kvótabrask og takmarka frjálst framsal. Allar auðlindir okkar verði stjórnarskrárbundin sameign þjóðarinnar.
11. Ísland verði tekið af lista hinna staðföstu þjóða og endurskoðað verði varnarsamstarf við Norðmenn. Engar heræfingar verði leyfðar hérlendis.
Vonandi að þetta gangi eftir - allavega í meginatriðum. Þá ætti maður að geta stutt nýju stjórnina nokkuð fyrirhafnarlítið. En ég áskil mér stjórnarandstöðu í málum þar sem hennar er þörf.
Ég styð - í ljósi kringumstæðna - þessa stjórnarmyndun og vona að hún verði okkur öllum til heilla. Ef Ísland verður jafnara og réttlátara samfélag að fjórum árum liðnum - þá hefur róðurinn ekki verið til einskis.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.5.2007 | 15:05
YYYYYYEEEEESSSSSSSSSSS!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ekki grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.5.2007 | 14:33
Kjósum Samfylkinguna og hellum gömlu súru tólf ára ,,mjólkinni" niður!
Í dag er hátíðisdagur! Í dag höfum við kjósendur öll völd í hendi okkar! Í dag kjósum við burt þau myrkraöfl sem vilja leynt og ljóst koma Íslandi aftur til þess tíma þegar engar almannatryggingar þekktust og aðeins börn hinna efnameiri gátu brotist til mennta. Alþýðan bjó í saggafullum og heilsuspillandi kjallaraholum. Verkamenn fóru niður á kaja dag hvern í von um að hljóta náð fyrir auðvaldinu. Hinir snéru til síns heima tómhentir þar sem svöng konan og ómegðin biðu þeirra.
Svona var Ísland fyrir tíma alþýðutrygginga, atvinnuöryggis, almennrar menntunar, góðrar heilsugæslu og velmegunar. Þess vegna kann lýsing mín hér að ofan að vera nöturleg. En kjör þeirra sem hljóta rétt fyrir kosningar einn og einn mola af gnægtaborðum forréttindastéttarinnar eru því miður ekki svo langt frá því sem tíðkaðist fyrir um þremur aldarfjórðungum síðan. Hér búa hópar fólks við eilíft basl og ná engan veginn endum saman. Eða hvað sagði ekki Páll frá Lifrarpolli í laginu Lady Madonna?
"Lady Madonna, children at your feet
wonder how you manage to make ends meet.
Who finds the money when you pay the rent,
did you think the money was heaven-sent?"
Það er erfiðara að komast í húsnæði en fyrir tólf árum og ókleift fyrir láglaunafólk, sem naut áður góðs af verkamannabústöðunum. Að kaupa íbúð er mörgu fólki ofviða og ekki er leigumarkaðurinn skárri.
Það er orðið dýrara að fara til læknis, sem bitnar mest á barnafólki, láglaunafólki, öldruðum og öryrkjum. Innan ríkisstjórnarflokkanna eru í fúlustu alvöru ræddar hugmyndir um að hinir efnameiri geti borgað sig fram fyrir í heilbrigðiskerfinu og í menntakerfinu ræður efnahagur nú þegar ferðinni. Núverandi fjármögnun háskóla í landinu tryggir betri menntun þeirra sem geta borgað skólagjöld en hinir skulu dúsa áfram í 500 manna bekkjum í Háskólabíói.
Það er djúp gjá milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis og fer versnandi, einkum vegna markaðsvæðingar raforkukerfisins og ójafns aðgangs landshluta að upplýsingahraðbraut netsins.
Ísland hefur verið dregið inn í stríðsrekstur án þess að þjóðin hafi verið spurð. Mesti smánarblettur síðari ára og þess skulu kjósendur minnast í kjörklefanum.
Enn hefur verið hert á einkavæðingu auðlinda lands og sjávar. Eftir tæpt hálft ár verður vatnið orðið einkaeign ef kjósendur gæta ekki að sér í dag.
Margsinnis hefur verið sýnt fram á ójöfnuðinn og misskiptinguna sem hér hefur vaxið hraðar en í nokkru Evrópulandi undanfarinn einn og hálfan áratug. Og nú hefur fyrrverandi ríkisskattstjóri bæst í hóp þeirra sem telja að skattastefna Íhaldsins og B-deildarinnar hafi markvisst hlunnfarið þá sem eru með lágar tekjur og meðaltekjur. En um leið hafa þeim tekjuhærri - einkum efstu 10 prósentunum - verið færðar fádæma kjarabætur á silfurfati af hálfu stjórnarflokkanna.
Viðbrögð stjórnarsinna hafa einkennst af pirringi en jafnframt af vandræðagangi við að réttlæta þessa grímulausu hægristefnu. Þeir vita eflaust upp á sig skömmina, einsog allir kosningavíxlarnir sýna.
,,Úbbs, æ æ - gleymdum við nú alveg fátæklingunum og velferðarkerfinu? Æ Æ!"
Þó GeirJón og félagar vakni upp með móralska timburmenn korteri fyrir kosningar - þá vitum við vel að þeir verða komnir á grenjandi túr strax eftir helgi ef kjósendur brestur kjarkinn í dag. Við skulum ekki gefa þeim kost á afréttara - heldur senda þá beinustu leið í pólitíska afvötnun!
Í staðinn skulum við viðurkenna hvert fyrir sig í kjörklefanum að þessi ,,aukni kaupmáttur" er skáldskapur þeirra sem eiga hagsmuni sína undir áframhaldandi óstjórn Íhaldsins og B-deildarinnar. Brauðmolahagfræðin byggir á sandi einsog afleit hagstjórn sýnir. Stýrivextir hafa hækkað um hátt í 10 prósent á undraskömmum tíma og viðskiptahallinn er við hættumörk. Á næsta og þarnæsta ári er spáð halla á fjárlögum. Þetta er nú allur ,,stöðugleikinn og árangurinn í efnahagsmálum"!
Við tökum við vondu búi en höfum gert það áður - með góðum árangri. Síðasta vinstristjórn vann frækilegan sigur á verðbólgudraugnum í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og á meðan töluðu Sjálfstæðismenn sig hása yfir öllu og engu í stjórnarandstöðu niðri á Alþingi.
En síðast en ekki síst snúast kosningarnar í dag um þjóðfélagsþróun næstu ára. Viljum við áframhaldandi vegferð núverandi stjórnarherra í átt til amerísks kapítalisma þar sem frumskógarlögmálið ræður því hverjir verði undir og hverjir fleyti rjómann? Eða viljum við endurreisa velferðarkerfið og komast aftur í hóp vina okkar á hinum Norðurlöndunum? Þar vill enginn kasta barninu út með baðvatninu! Þar viðurkenna allir yfirburði og samkeppnishæfni hins norræna velferðarsamfélags - meira að segja hægrimenn!
Mogginn og Valhöll skjálfa af ótta og grípa að vanda til gömlu vinstristjórna-grýlunnar. En gegn þessum gatslitnasta hræðsluáróðri íslenskra stjórnmála vitna ég í skrif Kolbeins Stefánssonar, bloggvinar, frá því í morgun:
,,Óskaplega er hún oftuggin þessi klisja að allt fari til andskotans ef við fáum vinstristjórn. Á norðurlöndum hafa löngum verið vinstristjórnir og þær hafa náð afburða árangri við að tryggja íbúum þessara landa lífskjör sem eru með því besta sem þekkist í heiminum."
Hef engu við þetta að bæta. Nú þurfa allir að drífa sig á kjörstað sem ekki eru búnir að kjósa. Ríkisstjórnin minnir á mjólk sem fyrir löngu hefur súrnað og hlaupið í kekki. Hellum þessari súru tólf ára gömlu ,,mjólk" niður!
Setjum X við S fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralag!
Skál fyrir kjördeginum!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2007 | 23:24
"Where are we going fellas?".....
......"To the top Johnny!"
"And where is that fellas?
"To the Toppermost of the Poppermost!"
Þessa gagnkvæmu og gagnlegu upp-peppun notuðu Bítlarnir þegar þeir voru nýskriðnir út úr Cavern-klúbbnum og voru rétt í þann mund að flytjast frá Lifrarpolli til Lundúna í árdaga frægðar sinnar. Og allir vita hvar þeir enduðu.
Við í Samfylkingunni ætlum líka á toppinn! Þvílík og önnur eins stórsókn á nokkrum vikum! Það er bókstaflega allt með okkur núna - stjórnarflokkarnir eru sér til háðungar með örvæntingarfullum kosningavíxlum ráðherranna út um hvippinn og hvappinn. Fólk finnur á eigin skinni að hinn svokallaði aukni kaupmáttur tilheyrir aðallega hinum græðandi stéttum og svo stendur auðvitað olnbogabarn ríkisstjórnarinnar - velferðarkerfið - fólki nær. Jafnvel þó það þurfi ekki á því að halda dagligdags, þá er samhjálpin greypt í huga Íslendinga - hvað sem líður allri efnishyggju og lífsgæðakapphlaupi.
Síðan er ánægjulegt að félagar okkar í VG virðast vera að ná sér á strik að nýju. Og saman geta þessir flokkar jafnvel myndað alvöru velferðarstjórn sem taka mun til eftir Íhaldið og moka flórinn eftir B-deild þess.
En til þess má ekkert gefa eftir! Það þarf að halda áfram að berjast fram á síðustu stundu! Frambjóðendum og fótgönguliðum Samfylkingarinnar hefur verið tekið opnum örmum á heimilum og vinnustöðum. Með rósina að vopni hafa jafnaðarmenn átt greiða leið að hjörtum kjósenda og flokkurinn okkar er á góðri leið með að uppskera það sem hann hefur sáð til undanfarnar vikur og mánuði.
Þó ég gleðjist yfir vaxandi fylgi Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum, þá er auðvitað alveg afleitt hvað Sjálfstæðisflokkurinn er með mikið fylgi. Að vísu kemur hann alltaf út í kosningum með minna fylgi en kannarnir spáðu honum - nema reyndar fyrir fjórum árum. Þá fékk hann að mig minnir svipað og honum hafði verið spáð.
Ég vona hins vegar að kjósendur séu ekki jafn þýlyndir og fólkið á myndinni!
Ekki viljum við:
Stríð við Íran.
Einkavæðingu Landsvirkjunar.
Upptöku skólagjalda.
Einkavæðingu í heilbrigðis- og menntakerfinu.
Frekari skattafríðindi á hátekjufólk og kapítalista.
Sjálfstæðismann í heilbrigðisráðuneytið.
Nei nei auðvitað viljum við ekki svona ullabjakk! Þess vegna þurfum við að sjá í gegnum krataklæðin sem Íhaldið sveipar sig alltaf rétt fyrir kosningar. Eftir kosningar stinga Sjallarnir rýtingi sínum á bólakaf í bak alþýðunnar og halda áfram uppteknum hætti með að færa fúlgur fjár frá henni til auðvaldsins.
Hlustum ekki á hræðsluáróður Íhaldsins og exbé-deildar þess um katastrófuna af vinstri stjórn. Þessir kveinstafir Sjálfstæðismannanna í exdé og exbé eru reyndar ekki nýir af nálinni. Það þarf ekki annað en að lesa gamla Mogga á netinu þar sem sama fólkið skrifar í velvakanda um hættuna af vinstri stjórn. Mun ég hér birta einhver af þessum gullkornum í næstu færslu. Sérstaklega frá manni að nafni Karl Ormsson sem titlaði sig raftækjavörð. Hann var einmitt að skrifa í Aðsendar greinar í Mogganum um daginn. Ekki hafði ég séð neitt tilskrifelsi frá honum síðan fyrir fjórum árum (kann reyndar að vera að hann hafi stungið niður penna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í fyrra).
Ætli Styrmir hringi alltaf í hann mánuði fyrir kosningar og panti lesendabréf eða grein frá honum? Ætli það ekki bara? Og ætli þetta sé sá sami Karl og hringir alltaf í Útvarp Sögu og ver verðtrygginguna og hagsmuni fjármagnseigenda með kjafti og klóm? Kannski.
En bíðið spennt eftir næstu færslu, þá koma inn einhver gullkorn eftir Karl Ormsson raftækjavörð emeritus!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.5.2007 | 00:11
Sá hlær best........
....sem síðast hlær! Ætli þetta eigi hugsanlega við um kosningarnar eftir átta daga? Að Samfylkingin muni ef til vill barasta fá fína kosningu? Ég held allavega að þeir sem vilja flokkinn feigan ættu nú að hugsa sinn gang.
Það virðist sem vel unninn málefnapakki og úrvals mannskapur frambjóðenda, auk baráttuandans hjá hinum almenna Samfylkingarmanni, séu að skila okkur góðri sveiflu. Stemningin frá landsfundinum hefur haldist meðal flokksfólks og dæmi um það eru krafturinn í frambjóðendunum, sem virðast fá afspyrnugóðar viðtökur á vinnustöðum. Þannig var til dæmis gaman að hlusta í morgun á Róbert Marshall og Guðmund Steingrímsson í viðtali hjá Sigurði G. Tómassyni. Ferskleikinn sem fylgir þeim tveimur er eitt skýrasta dæmið um sóknarhug Samfylkingarinnar.
Ég held líka að við jafnaðarmenn höfum metið stöðuna eftir landsfundinn þannig að botninum væri náð í skoðanakönnunum, við hefðum engu að tapa en allt að vinna. Og þá setjast menn undir árarnar baráttuglaðir og reyna fyrst og fremst að hafa gaman af þessu! Þessi baráttuvilji er held ég að smita sér út til kjósenda.
Svo virðist sem stjórnarflokkarnir séu á undanhaldi hinu mesta - enda sýna kannanir í kjördæmum, svo sem í Kraganum og Reykjavíkurkjördæmunum, að ríkisstjórnin er fallin. Ekki með 4,9 heldur með 4!
Vinstriflokkarnir gætu verið að vinna vel á þann 12. maí. Samfylkingin er að bæta vel við sig frá fylgislægðinni og tekur það fylgi reyndar að hluta frá VG. En VG hafa samt ekki dalað mikið og eru í flestum könnunum að tvöfalda fylgi sitt hið minnsta. Kannski sagan frá 1978 sé að endurtaka sig varðandi vinstra fylgið í landinu. En þá er bara að klúðra ekki framhaldinu, líktog þá var gert.....
Við skulum þó muna að enn er meira en vika þar til landsmenn skunda í kjörklefana. Og á þeim tíma getur margt gerst. Við getum klúðrað restinni af baráttunni en við getum líka haldið haus þar til ,,flautan" gellur. Mín tilfinning er sú að Samfylkingin muni akkúrat gera hið síðarnefnda. Það virðist ekki vera sami jarðvegur fyrir mistökum í kosningabaráttu hennar og einkenndi bæði kosningarnar 1999 og 2003.
En ég segi bara einsog í boltanum: OOOOOOOOOOOOOOOOOOGGGGGGGG BEEERJAAAAAAASSSTTTT!
Framsóknarflokkur tapar fylgi í Suðvesturkjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2007 | 22:52
Fjármálaráðherra auðvaldsins missti kúlið!
Til hamingju með daginn vinnandi stéttir til sjávar og sveita!
Mikið er ég ánægður eftir heilbrigðis- og skattamálaþáttinn í Kastljósinu áðan. Það er ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir hafa tapað þónokkrum atkvæðum eftir þáttinn, því sneypuför þeirra var allt að því brjóstumkennanleg.
Í heilbrigðismálaumræðunni var Ásta Möller úti á túni og Siv fór með endalausar talnarullur og var í bullandi afneitun gagnvart þeim alvarlega vanda sem heilbrigðiskerfið og sérstaklega Landspítalinn búa við. Ásta Ragnheiður flokkssystir mín og Álfheiður Ingadóttir (VG) áttu ekki í vandræðum með að pakka þeim stöllum saman. Þá talaði Kiddi sleggja einnig af yfirvegaðri skynsemi um heilbrigðismálin - náði þar með aftur smá krediti frá mér eftir að hafa brotlent í flugvallarumræðunni fyrir hálfum mánuði síðan.
En hafi Íhaldið og B-deild þess gert sig að fífli í heilbrigðismálunum, þá skoruðu þeir sjálfsmörkin á færibandi í umræðunum um skattamálin! Ég engdist um í Þórðargleði minni að horfa upp á Árna Matthiesen og Jón Sigurðsson reyna að klóra sig framúr skattastefnu ríkisstjórnarinnar - sem gengið hefur undir auðmönnum þessa lands öll þau 12 ár sem hún hefur setið við völd. Ágúst Ólafur og Steingrímur Joð hámuðu Árna Jón Matthiesen Sigurðsson í sig trekk í trekk í trekk í trekk. Alþjóð horfði á atkvæðin fljúga með ógnarhraða frá ráðherrablókunum.
Íhaldið og B-deild þess eru hér með hvattir til þess að halda áfram að senda atkvæðafælur í kosningaþætti! Stundum er meira að segja nóg að senda einn fulltrúa fyrir báða flokkana - samanber þetta snilldarmóment þegar spurt var um fjármagnstekjuskattinn:
Spyrill (Ingólfur Bjarni Sigfússon): Fjármagnstekjuskatturinn - á að hækka hann eða halda honum [óbreyttum]?
Árni M. Matthiesen: Nei, það á ekki að hækka hann, það á að hafa hann einsog hann er í dag.
Jón Sigurðsson: Það á ekki að hækka hann, það á að hafa hann einsog hann er í dag.........[hlátur í sjónvarpssal].....
Hafi einhver efast, þá er það 100% kristaltært eftir þáttinn í kvöld, að Framsóknarflokkurinn er koppí-peist af Sjálfstæðisflokknum!
Undir lok umræðunnar varð Árni M. Matthiesen sér til skammar með því að ráðast að þáttarstjórnandanum og ungum manni utan úr sal, sem spurði hann um ástæður meiri hækkunar skattbyrði tekjulægstu hópanna. Fjármálaráðherra auðvaldsins missti kúlið algjörlega. Enda á máltækið vel við um að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Það vita það allir sem vita vilja að ríkisstjórnin hefur leynt og ljóst fært gríðarlegar fjárhæðir frá tekjulægri hópunum til hinna tekjuhærri. Þetta er bara sú pólitík sem Árni M. Matthiesen stendur fyrir og þýðir lítið fyrir hann að fyrtast við þegar blásaklaus kjósandi utan úr sal vill fá skýr svör við þessari öfugþróun í skattbyrði.
Svo var frábært þegar Ágúst Ólafur rifjaði upp fyrir Árna hans eigin svör við fyrirspurn á Alþingi um þróun skattbyrði. Sjaldan hefur nokkur stjórnmálamaður verið mátaður jafn kyrfilega í nokkrum umræðuþætti fyrr eða síðar. Gústi var stjarna þáttarins að mínu áliti. Þá átti Steingrímur Joð snilldarleik með kommenti sínu um þá öfugsnúnu forgangsröðun stjórnarflokkanna að afskaffa hátekjuskattinn í stað þess að setja peninga í geðheilbrigðismál og önnur brýn samfélagsleg verkefni.
Ég segi því hiklaust að eymíngjans ríkisstjórnin hrekst nú úr einu horninu í annað. Hún þarf stöðugt að bjarga í horn og sjálfsmörkunum er farið að rigna inn. Nú er bara að reka flóttann útí hafsauga 12. maí og hefjast svo handa við að hreinsa upp skítinn eftir Íhaldið og B-deildina!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2007 | 16:28
Spillingardans, spillingardans....
Aldrei er góð vísa of oft kveðin í aðdraganda kosninga:
Spillingardans, spillingardans,
á Alþingi ráðamenn dansa þennan vals.
Gróðafíkn og nautnafans,
kapítalistar andskotans.
Já íslenskir ráðamenn þeir eru svín
á meðan alþýðan biður um mat.
Neyðaróp fólksins eru fyrir þeim grín,
þeir sitja og troða á sig gat.
Það er tími til kominn að henda þeim út,
um hálsinn berum við rauðan klút.
Hendum þeim fyrir hundana!
Látum þá drekka hland!
Og hér mun rísa fyrirmyndarland!
http://www.youtube.com/watch?v=q2PyzYAQjHA
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2007 | 03:11
Pétur þulur allur
Nú er Pétur þulur Pétursson búinn að kveðja okkur. Hann var sá fyrsti sem ég man eftir á öldum ljósvakans í bernsku minni þegar opið var fyrir útvarpið heima - á þeim tímum þegar rás tvö var ekki enn farin í loftið. Reyndar man ég einnig vel eftir Jóni Múla og Jóhannesi Arasyni.
Pétur var hinn reffilegasti sem þulur og man ég óljóst eftir lestri hans ,,úr forystugreinum dagblaðanna". En álit mitt á honum jókst enn frekar þegar hann las í útvarpið hið mikla stórvirki Þórbergs um ævi séra Árna Þórarinssonar prófasts. Þetta var fyrir sirka áratug síðan og man ég vel eftir því hvernig Pétur fór á kostum í lestrinum og hermdi á ógleymanlegan hátt eftir séra Árna.
En Pétur var ekki síður sagnabrunnur um mannlífið í gömlu Reykjavík - þegar Reykjavík var miklu meiri borg en hún er í dag. Ég á bókina Úr fórum þular, þar sem lesa má úrval af þessum frásögnum Péturs. Gamla Reykjavík birtist þar ljóslifandi með öllum sínum skrýtnu karakterum sem sluppu við sjúkdóms-kerfis-væðinguna er gert hefur okkur öll að einni stórri flatneskju.
Megi minning Péturs þular Péturssonar lifa.
Pétur Pétursson þulur látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2007 | 21:41
Upp upp mín sál og allt mitt geð!
Jæja, Samfylkingin er á leiðinni upp. 24,1 prósent er áþreifanleg bæting þótt enn sé talsvert í land frá kjörfylginu. Vissulega er eflaust um áhrif frá landsfundinum að ræða (rétteinsog há mælingin á Íhaldinu sýnir). En ég held samt sem áður að uppsveiflan sé varanleg.
Fylgið virðist einkum koma frá VG, sem enn eina ferðina virðast vera að toppa snemma. En við í Samfó (og VG) eigum núna fyrst og fremst að djöflast í Íhaldinu og það mættu Vinstri-grænir sérstaklega fara að hugsa um, því þeir hafa árum saman verið með Framsókn á heilanum. Til þess að fella stjórnina þarf að fella Íhaldið niður um þónokkur prósent.
Íslandshreyfingin hefur ekki erindi sem erfiði, og Frjálslyndir geta þurft að finna sér aðra vinnu. Þá sýnir könnunin svart á hvítu að ,,hrukkudýraframboðið" er andvana fætt - með aðeins núllkommafimm af hundraði.
Verst hvað mörg dauð atkvæði falla niður. Hættan á að núverandi ríkisstjórn haldi velli í sjálfum kosningunum er raunveruleg og þess vegna verður að spýta í lófana svo um munar.
Einnig er ljóst að sundurgreindar niðurstöður þessarar könnunar Gallúps og Ríkisútvarpsins sýna að staða Samfylkingarinnar er heldur lakari á mölinni en í dreifbýlinu. Þess vegna má Samfylkingarfólk á suðvesturhorninu (ég þeirra á meðal) hvorki una sér svefns né matar fram að kjördegi.
En í heildina er ánægjulegt að flokkur okkar virðist á siglingu og það er svo sannarlega góð sumargjöf.
Gleðilegt sumar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)