28.7.2007 | 23:29
Magnús er að taka Borgarfjörð eystri í nefið með annarri!
Megas er núna á sviði á Borgarfirði eystri (les: Magnafirði) í beinni á Rás tvö. Held ég hafi aldrei heyrt kallinn svona flottan einsog núna! Hver slagarinn á fætur öðrum steinliggur - Ragnheiður biskupsdóttir, Álafossúlpan, Heimspekilegar vangaveltur, Reykjavíkurnætur, Ég á mig sjálf, und so weiter.....
Svo eru Megas og Senuþjófarnir auðvitað með eitt og eitt lag af Frágangi. Hljómskífan sú arna fékk hvorki meira né minna en fimm stjörnur í Mogga gærdagsins.
Gamli maðurinn hefur sennilega aldrei verið betri!
Meginflokkur: Tónlist | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Facebook
Athugasemdir
Einsog gott rauðvín!
Hákon Baldur Hafsteinsson, 28.7.2007 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.