Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
1.5.2007 | 22:52
Fjármálaráðherra auðvaldsins missti kúlið!
Til hamingju með daginn vinnandi stéttir til sjávar og sveita!
Mikið er ég ánægður eftir heilbrigðis- og skattamálaþáttinn í Kastljósinu áðan. Það er ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir hafa tapað þónokkrum atkvæðum eftir þáttinn, því sneypuför þeirra var allt að því brjóstumkennanleg.
Í heilbrigðismálaumræðunni var Ásta Möller úti á túni og Siv fór með endalausar talnarullur og var í bullandi afneitun gagnvart þeim alvarlega vanda sem heilbrigðiskerfið og sérstaklega Landspítalinn búa við. Ásta Ragnheiður flokkssystir mín og Álfheiður Ingadóttir (VG) áttu ekki í vandræðum með að pakka þeim stöllum saman. Þá talaði Kiddi sleggja einnig af yfirvegaðri skynsemi um heilbrigðismálin - náði þar með aftur smá krediti frá mér eftir að hafa brotlent í flugvallarumræðunni fyrir hálfum mánuði síðan.
En hafi Íhaldið og B-deild þess gert sig að fífli í heilbrigðismálunum, þá skoruðu þeir sjálfsmörkin á færibandi í umræðunum um skattamálin! Ég engdist um í Þórðargleði minni að horfa upp á Árna Matthiesen og Jón Sigurðsson reyna að klóra sig framúr skattastefnu ríkisstjórnarinnar - sem gengið hefur undir auðmönnum þessa lands öll þau 12 ár sem hún hefur setið við völd. Ágúst Ólafur og Steingrímur Joð hámuðu Árna Jón Matthiesen Sigurðsson í sig trekk í trekk í trekk í trekk. Alþjóð horfði á atkvæðin fljúga með ógnarhraða frá ráðherrablókunum.
Íhaldið og B-deild þess eru hér með hvattir til þess að halda áfram að senda atkvæðafælur í kosningaþætti! Stundum er meira að segja nóg að senda einn fulltrúa fyrir báða flokkana - samanber þetta snilldarmóment þegar spurt var um fjármagnstekjuskattinn:
Spyrill (Ingólfur Bjarni Sigfússon): Fjármagnstekjuskatturinn - á að hækka hann eða halda honum [óbreyttum]?
Árni M. Matthiesen: Nei, það á ekki að hækka hann, það á að hafa hann einsog hann er í dag.
Jón Sigurðsson: Það á ekki að hækka hann, það á að hafa hann einsog hann er í dag.........[hlátur í sjónvarpssal].....
Hafi einhver efast, þá er það 100% kristaltært eftir þáttinn í kvöld, að Framsóknarflokkurinn er koppí-peist af Sjálfstæðisflokknum!
Undir lok umræðunnar varð Árni M. Matthiesen sér til skammar með því að ráðast að þáttarstjórnandanum og ungum manni utan úr sal, sem spurði hann um ástæður meiri hækkunar skattbyrði tekjulægstu hópanna. Fjármálaráðherra auðvaldsins missti kúlið algjörlega. Enda á máltækið vel við um að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Það vita það allir sem vita vilja að ríkisstjórnin hefur leynt og ljóst fært gríðarlegar fjárhæðir frá tekjulægri hópunum til hinna tekjuhærri. Þetta er bara sú pólitík sem Árni M. Matthiesen stendur fyrir og þýðir lítið fyrir hann að fyrtast við þegar blásaklaus kjósandi utan úr sal vill fá skýr svör við þessari öfugþróun í skattbyrði.
Svo var frábært þegar Ágúst Ólafur rifjaði upp fyrir Árna hans eigin svör við fyrirspurn á Alþingi um þróun skattbyrði. Sjaldan hefur nokkur stjórnmálamaður verið mátaður jafn kyrfilega í nokkrum umræðuþætti fyrr eða síðar. Gústi var stjarna þáttarins að mínu áliti. Þá átti Steingrímur Joð snilldarleik með kommenti sínu um þá öfugsnúnu forgangsröðun stjórnarflokkanna að afskaffa hátekjuskattinn í stað þess að setja peninga í geðheilbrigðismál og önnur brýn samfélagsleg verkefni.
Ég segi því hiklaust að eymíngjans ríkisstjórnin hrekst nú úr einu horninu í annað. Hún þarf stöðugt að bjarga í horn og sjálfsmörkunum er farið að rigna inn. Nú er bara að reka flóttann útí hafsauga 12. maí og hefjast svo handa við að hreinsa upp skítinn eftir Íhaldið og B-deildina!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.4.2007 | 21:41
Upp upp mín sál og allt mitt geð!
Jæja, Samfylkingin er á leiðinni upp. 24,1 prósent er áþreifanleg bæting þótt enn sé talsvert í land frá kjörfylginu. Vissulega er eflaust um áhrif frá landsfundinum að ræða (rétteinsog há mælingin á Íhaldinu sýnir). En ég held samt sem áður að uppsveiflan sé varanleg.
Fylgið virðist einkum koma frá VG, sem enn eina ferðina virðast vera að toppa snemma. En við í Samfó (og VG) eigum núna fyrst og fremst að djöflast í Íhaldinu og það mættu Vinstri-grænir sérstaklega fara að hugsa um, því þeir hafa árum saman verið með Framsókn á heilanum. Til þess að fella stjórnina þarf að fella Íhaldið niður um þónokkur prósent.
Íslandshreyfingin hefur ekki erindi sem erfiði, og Frjálslyndir geta þurft að finna sér aðra vinnu. Þá sýnir könnunin svart á hvítu að ,,hrukkudýraframboðið" er andvana fætt - með aðeins núllkommafimm af hundraði.
Verst hvað mörg dauð atkvæði falla niður. Hættan á að núverandi ríkisstjórn haldi velli í sjálfum kosningunum er raunveruleg og þess vegna verður að spýta í lófana svo um munar.
Einnig er ljóst að sundurgreindar niðurstöður þessarar könnunar Gallúps og Ríkisútvarpsins sýna að staða Samfylkingarinnar er heldur lakari á mölinni en í dreifbýlinu. Þess vegna má Samfylkingarfólk á suðvesturhorninu (ég þeirra á meðal) hvorki una sér svefns né matar fram að kjördegi.
En í heildina er ánægjulegt að flokkur okkar virðist á siglingu og það er svo sannarlega góð sumargjöf.
Gleðilegt sumar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2007 | 23:15
Af sjónvarpsframboðsfundr einm vestfirskr!
Gaman var að fylgjast með sjónvarpsfundinum sem Simmi frændi stjórnaði áðan vestur á Ísafirði. Í fyrri hlutanum var rætt um samgöngumál og í hinum síðari um sjávarútveg. Sérstaklega var mikið fjör í sjávarútvegsumræðunum - rétt einsog ég ímynda mér að hafi verið á framboðsfundum vestur á fjörðum áður fyrr. Það var víst brjálað stuð á mönnum í þá daga. Samanber þegar ,,Matthías Bjarnason, Steingrímur Hermannsson og Karvel Pálmason birtust alþjóð í gervi trúða þar sem þeir klæmdust hver við annan um högna og læður í minkabúum og mátti ekki á milli sjá hver fékk háðulegasta útreið." (Jón Baldvin - Tilhugalíf, bls. 302)
Ekki var rætt um kynlíf minka í kvöld en reyndar var einn þátttakenda í sjávarútvegsumræðunum doktor í kynlífi laxa - félagi Össur. Hann stóð sig vel að vanda enda með málafylgjuna og húmorinn á réttum stað í svona deböttum.
Í samgönguhlutanum var Gutti sveitungi minn fulltrúi Samfylkingarinnar. Hann var flottur og traustur - lét Sturluna ekkert eiga inni hjá sér. Sturla var orðinn nett pirraður á köflum enda ekki búinn að lyfta litlafingri fyrir Vestfirðinga í samgönguráðherratíð sinni. Og ekki vill kallálftin leggja af Hvalfjarðargangaskattinn. Svei'onum!
Sturla var lélegur. Og ekki var fulltrúi Framsóknar betri - ,,Byrgir" Jón, sem Bragi bóksali kallaði í viðtali við Sigurð G. Tómasson ,,siglfirska barnið með pönnukökuandlitið"! Sem betur fer er hann á harðahlaupum útaf þingi ef marka má skoðanakannanir!
Ekki var bara rætt um samgöngur á Vestfjörðum - heldur einnig í víðara samhengi, svo sem gæluverkefni Sturlunnar - Reykjavíkurflugvöll og Samgöngumiðstöð. Þar fór samúð mín heldur þverrandi með landsbyggðarframbjóðendunum. Ég er andvígur flugvellinum á núverandi stað þó ég geti vel hugsað mér hann annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Og Samgöngumiðstöðin - kræst!
Kiddi sleggja hrapaði mörg hundruð metra í áliti hjá mér í einstrengingslegri vörn sinni fyrir seinnastríðs-Breta-flugvellinum í Vatnsmýri. Ætli hann yrði eins kátur ef troðið væri flugvelli í miðri Bolungarvík og hann fengi engu ráðið um tilvist hans og staðsetningu? Kommon! Alveg sjálfsagt að halda góðum flugsamgöngum við landsbyggðina en við Reykvíkingar og brottfluttir Skagamenn eigum að ráða því hvar flugvöllurinn er staðsettur. Reykjavík á að vera fyrir fólk og byggð fyrir fólk!
Svo er annað mál hvort einn ákveðinn vinur minn - virðulegur lögmaður hér í bæ og varaþingmaður - muni einhvern tímann ganga af trúnni á Vatnsmýrarflugvöllinn. Efast um að honum sé viðbjargandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2007 | 23:50
Eftir harðan hægri vetur kemur vinstra vor!
Í dag lauk landsfundi Samfó í Egilshöll. Ég var á fundinum í gærkvöldi og eftir hádegið í dag og lýg engu um samhuginn sem einkenndi fundinn. Þrátt fyrir allan mótbyrinn sem Samfylkingin hefur með röngu og réttu mátt þola undanfarið - þá held ég svei mér þá að brimskaflarnir hinir stærstu séu að baki og lygnari sjór framundan.
Því miður átti ég ekki þess kost að vera við setningu fundarins í gær en heyrði upptöku af henni á heimasíðu flokksins. Stórkostlegt allt saman, verst að vera ekki á svæðinu. Ingibjörg var sérdeilis frábær og Mona Sahlin og Helle Thorning-Smidt eru glæsilegar forkvinnur sænskra og danskra krata. Þeim mæltist snilldarlega beint frá hjartarótum og sýndu enn og aftur hvers vegna jafnaðarstefnunni einni hefur tekist að skapa hina einu réttu þjóðfélagsgerð jöfnuðar og öflugs atvinnulífs.
Munurinn á okkur og hægrimönnum er svo augljós þegar uppi er staðið: Einstaklingurinn nýtur sín ekki nema í samfélagi við aðra einstaklinga. Hann er ekki til í einhverju tómarúms-mengi einsog frjálshyggjan kennir okkur.
Málið er einfalt hjá okkur jafnaðarmönnum. Okkur kemur það við að fólkið á næstu hæð eigi kannski varla til hnífs og skeiðar. Okkur kemur það við þegar börn komast ekki til tannlæknis sökum efnaleysis foreldranna. Okkur kemur það við þegar ömmur og afar bíða misserum saman eftir hjúkrunarrými. Okkur kemur það við þegar afkomu stórra hópa fólks er vísvitandi haldið niðri með stjórnvaldsaðgerðum.
Okkur kemur þetta allt við vegna þess að við erum jafnaðarmenn - vinstrimenn. Við líðum ekki ójöfnuðinn sem búið hefur um sig í þjóðfélaginu. Þessi ójöfnuður er sóun á mannauði, tækifærum og lífsgæðum.
Hæstvirtur fjármálaráðherra sagði á lokadögum þingsins: ,,Drengir, sjáiði ekki veisluna?" Nú kann vel að vera að Matthiesenarnir sjái veisluna. Og Engeyjarættin. Og H. Ben ættin. Og Björgúlfarnir. En sorrí Árni. Pupulnum var ekki boðið í partíið. Það var bara ætlað Ví-Æ-Pí-liðinu.
Einu sinni flugu allir á venjulega farrýminu í flugvélinni Ísland Airlines. En í dag flýgur fátæka fólkið á farangursgeymslu-farrýminu, skuldugur ómegðar-millihópaalmúginn með æðahnúta í sætaþrengslum á almennum klassa og loks Ví-æ-píið á einhverjum allsherjar Súper-Bisness-Saga-Klass. Er þetta virkilega það sem við viljum?
Nei! Ég neita að trúa því að fólk vilji festa í sessi stéttaþjóðfélagið sem tók okkur áratugi að losa okkur við á síðustu öld. Ég neita að trúa því að fólk vilji forgang hinna efnameiri að öllum gæðum okkar samfélags. Ég neita að trúa því að fólk vilji hella olíu á eld græðginnar og efnishyggjunnar. Ég neita að trúa því að fólk vilji ganga til fulls skrefið í átt að amerískum kapítalisma.
En hvernig komum við í veg fyrir áframhaldandi misskiptingu, óstjórn, valdhroka og sölu á ömmum? Jú - það er aðeins eitt svar við því! Ex-ess í vor!
Eftir fjórar vikur lýkur kapphlaupinu um atkvæði landsmanna. Jafnaðarmenn fara vel nestaðir í slaginn. Áhersla á börn, ungmenni, eldra fólk, endurreisn almannatryggingakerfisins, tiltekt í efnahagsmálum, nýtt tækifæri til menntunar, margverðlaunaðar hugmyndir um nýsköpun og friðsamari utanríkisstefnu. Allt þetta liggur fyrir í stjórnmálaályktuninni sem samþykkt var í Egilshöllinni í dag.
Allir fóru ánægðir og glaðir af fundinum. Þvert á hrakspár andstæðinga og álitsgjafa - þá var hann sá fjölmennasti í sögu flokksins. Mótlætið hefur þjappað okkur enn betur saman og nú er bara að breiða út fagnaðarerindið um frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Ég held að Guðmundur Steingrímsson hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann talaði í dag um endurreisn almannatryggingakerfisins. Ríkisstjórn afa hans - Stjórn hinna vinnandi stétta - ýtti úr vör alþýðutryggingunum svonefndu sem voru upphafið að almannatryggingum einsog við þekktum þær lengst af. Núna er sú Snorrabúð stekkur og ölmusur og biðlistar hafa fyrir löngu breytt velferðarkerfinu okkar svo óþekkjanlegt er orðið.
En sem betur fer er stjórn hinna græðandi stétta í andarslitrunum og einstakt tækifæri til þess að afplögga öndunarvélina þann tólfta maí næstkomandi. Við Samfylkingarfólk ætlum svo sannarlega að leggjast á árarnar og róa af krafti í átt að norræna velferðarsamfélaginu. Ný stjórn hinna vinnandi stétta er handan við hornið.
,,Eftir harðan hægri vetur kemur vinstra vor", sögðu Allaballarnir í sinni síðustu kosningabaráttu vorið 1995.
Megi svo verða.
Ingibjörg Sólrún: Erum orðin fullmótaður flokkur jafnaðarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.4.2007 kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2007 | 01:48
Geir með gat á haus - börðum við stein!
Blaðrið í Geir Há hinum Harða er orðið efnahagsvandamál - einsog núverandi forseti sagði einhvern tímann um Steingrím Hermannsson.
Þessi annars viðkunnanlegi forsætisráðherra hefur greinilega ,,aldrei verið á togara" einsog mamma segir. Veit hann ekki að fleiri og fleiri fyrirtæki eru að hrökklast úr landi vegna þess að krónu-krípið er að ganga af þeim dauðum? Og hvað með heimilin í landinu? Fórnarkostnaðurinn af krónunni er fyrir lifandis löngu búinn að eyðileggja geðheilsu tugþúsunda Íslendinga.
Ráðuneyti Geirs H. Haarde: Okurverð, okurvextir, verðtrygging, fákeppni, einokun.
Ráðuneyti Geirs H. Haarde: Sjúklingaskattar, skólagjöld, biðlistar, skattfríðindi auðvaldsins, skattpíning okkar hinna.
Ráðuneyti Geirs H. Haarde: Stuðningur við stríðsrekstur, leyniþjónusta Björns Bjarnasonar Benediktssonar, Evrópufóbía.
Ráðuneyti Geirs H. Haarde: Stóriðjufyllerí, náttúruspjöll, einkavinavæðing vatns og Útvarps, landsbyggðin í rúst eftir kvótann.
Þetta lið myndi selja ömmu sína ef það gæti.
Segi einsog Orri Harðar sagði um annan Geir af öðru tilefni - EKKI MEIR GEIR!
X-S fyrir endurreisn norræna velferðarkerfisins, réttlátt skattakerfi, friðsama utanríkisstefnu, erlenda banka, evru, nýsköpun, náttúruvernd og gott veður!
P.S. Hafnfirðingar! Segið NEI við stækkun álversins! Annars halda lánin ykkar og okkar allra að hækka. Alveg óþarfi að fara á hausinn fyrir Rannveigu Rist!
Geir: Ranghugmyndir að upptaka evru leysi öll vandamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.4.2007 kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.3.2007 | 00:03
Í tilefni (gær)dagsins.......
Vöggukvæði róttækrar móður
Enn syng ég gamalt stef við þinn sængurstokk í kvöld
er sólin rennur langt að fjallabaki
um þá sem sitja sléttir og slóttugir við völd
og sleppa aldrei neinu fantataki.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu reyna að draga úr þér kjarkinn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að á mörgum þeirra höggvist sundur barkinn.
Þeir eiga glæstar hallir þeir eiga lúxusbíl
þeir eiga meir en nóg til hnífs og skeiðar
þeir kæfa okkur í táragasi og kalla okkur skríl
þeir koma okkar vandræðum til leiðar.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu eflaust pína þig til dauða
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að úr mörgum þeirra vætli blóðið rauða.
Svo segi ég að lokum fyrst sólin hnigin er
og svefnsins engill strýkur þér um hvarma
að margan góðan drenginn þeir myrtu þar og hér
og margur hlaut að dylja sína harma.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
myrða okkur líka einhvern veginn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að af mörgum þeirra væri skjátan flegin.
(Böðvar Guðmundsson)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.4.2007 kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 23:47
Skoðanakönnun vegna Alþingiskosninga er komin á síðuna!
Líkteinsog Gallúp, Félagsvísindastofnun og blöðin - þá ætlar yðar einlægur að spyrja um kosningahegðun lesenda ef kosið væri nú. Valkostirnir eru þeir flokkar sem nú eiga sæti á þingi, sem og hinn nýi flokkur Margrétar Sverrisdóttur og Ómars Ragnarssonar. Einnig geri ég ráð fyrir stuðningsmönnum Auðra og Ógildra, og loks þeim sem hyggjast sitja heima (mæli samt ekki með því að fara ekki á kjörstað!).
Kjósið eða frjósið!
25.2.2007 | 22:11
Er Kvennalistinn búinn að yfirtaka vinstriflokkana?
Eins mikill jafnréttissinni og ég tel mig vera, þá er kvenréttishyggja (öfgafemínismi) farinn að yfirskyggja félagshyggjuna í stefnuskrám Samfylkingar og VaffGé. Það er vissulega ennþá verk að vinna í átt að jafnrétti kynjanna enda er konan því miður á sumum sviðum ennþá "[..]the nigger of the world", líktog John Lennon kvað réttilega.
Þetta á sérstaklega við um launamun kynjanna og hina ömurlegu launaleynd sem hefur kerfisbundið haldið konum og lægra launuðum stéttum (sem að stórum hluta eru konur) niðri í launakjörum. Þetta er hið stóra baráttumál femínista og jafnréttissinna almennt. Auk þess vitaskuld að berjast á móti mansali, vændi, kynbundnu ofbeldi og óæskilegum afleiðingum klámvæðingarinnar - hvar jú hallar á konur að stærstum hluta.
Að ég tali ekki um slæmt hlutskipti kvenna og barna í þriðja heiminum. Þetta eru hin raunverulegu baráttumál kvennahreyfingarinnar.
En ég get ekki fallist á þá rosalegu kvenréttishyggju sem birtist í ályktunum Vinstri grænna og kvennahreyfingar Samfylkingar um kynjakvóta, og samþættingu kynjafræðilegra sjónarmiða við allar stjórnvaldsaðgerðir. Að ég tali nú ekki um netlögreglu Steingríms Joð gegn klámi á netinu: Óframkvæmanleg tillaga sem eyðileggur réttmætan málstað okkar sem lítum á klám sem afskræmingu á kynlífi og hlutgervingu kvenlíkamans.
Í hjarta mínu er ég sammála jöfnum hlut kynjanna ef sú kjörstaða er uppi að viðkomandi nefnd/ráð/ríkisstjórn/alþingi/sveitarstjórn/fyrirtækisstjórn er skipuð sem allra hæfustum einstaklingum. En jákvæð mismunun er vandmeðfarin og menn skulu varast að beita henni ef um leið er verið að útiloka hæfari einstaklinga en hina útvöldu þegar kemur að vali í stjórnir, ráð og nefndir á vegum hins opinbera eða fyrirtækja. Við erum ekki að gera konum greiða með jákvæðri mismunun nema í algjörum undantekningartilvikum (til dæmis ef karlar eru kerfisbundnir teknir framyfir í hverju einasta tilviki).
Að mínu mati gengur hæfni og/eða niðurstöður lýðræðislegra kosninga ávallt framyfir kynferði, kynhneigð eða þjóðerni þeirra sem setjast í stjórnir fyrirtækja eða eru kosnir á opinberar fulltrúasamkundur.
Einsog femínistar eru upp til hópa frambærilegt fólk, (já karlar eru líka femínistar) þá þykir mér heldur dapurlegt hversu lítinn áhuga þeir virðast hafa á málefnum kvenna sem vinna langan vinnudag fyrir skítalaun - eru jafnvel í fleiri en einni og fleiri en tveimur vinnum. Nema kannski Steinunn Valdís - hún sýndi afturhaldsöflum í tvo heimana þegar hún hækkaði launin í leikskólunum í fyrravetur.
En gegnumsneytt þykir mér málflutningur kvenfrelsissinna lykta af yfir- og millistéttabakgrunni. Það er einsog feministar hafi margir hverjir ekki migið í saltan sjó. Af hverju skiptir mestu máli að koma konum að í flestar stjórnunarstöður - nú eða gera konu að forsætisráðherra? Af hverju skiptir þetta mestu máli á meðan stórum kvennastéttum, til dæmis uppfræðslustéttum, umönnunarstéttum og heilbrigðisstéttum eru greidd smánarlaun? Og hvað með konurnar í frystihúsunum? Eða skúringunum? Millistétta-femínisminn skemmir fyrir raunverulegum baráttumálum kvenna (og um leið karla).
Ég hef engar áhyggjur af kvenþjóðinni þegar kemur að valdastöðum í framtíðinni. Konur eru jafn hæfar og karlar í að stjórna landinu og miðunum. Jafnvel hæfari ef eitthvað er. Þær hafa leitt hina miklu menntasókn seinustu ára og áratuga. En hæfni kvenna byggist á þeirra eigin verðleikum, ekki kynferðis þeirra.
Verður jafnréttisbaráttan ekki að hugsast upp á nýtt góðir hálsar? Er áherslan á kynjuð stjórnmál farin að yfirskyggja stéttapólitíkina sem á að vera höfuðmál vinstrimanna? Jafnvel í allsnægtaþjóðfélagi dagsins í dag skiptir mestu að berjast gegn ofríki auðvaldsins. Vissulega hafa lengstum gengið saman hönd í hönd auðvald og karlaveldi, en það breytir því ekki að jafnari skipting lífsgæðanna og lífskjaranna er hin eina sanna jafnréttisbarátta. Og herferðin gegn vaxandi stéttaskiptingu seinustu ára er mál okkar allra - ekki síst kvenna sem draga rýrari björg í bú en þær eiga með réttu heimtingu á.
Þess vegna legg ég til að okkar frábæru kvenréttindafrömuðir á vinstri vængnum fókuseri frekar á raunverulegar meinsemdir kapítalísks þjóðfélags. Ójöfn skipting kökunnar er illkynja krabbamein sem dreift hefur sér útum allan þjóðarlíkamann. Tvennar afleiðingar þess skal ég nefna hér:
Í fyrsta lagi: Gríðarhátt hlutfall langskólagenginna þingmanna og sveitarstjórnamanna - einkum þingmanna. Góð menntun er hið besta mál en menntasnobbið er orðið yfirþyrmandi - líka á Alþingi. Flestir þingmenn hafa haft ágætar tekjur í fyrri störfum og eiga erfitt með að samsama sig láglaunastéttum og ekki síst þeim sem vinna við iðnir og verkleg störf af einhverju tagi. Ekki bara þingmenn Íhaldsins og Framsóknar, heldur einnig vinstra megin við miðju.
Verkafólk, bændur, sjómenn, aldraðir og öryrkjar og nýbúar eiga undir högg að sækja á löggjafarsamkundu þjóðarinnar og þar er meðal annars um að kenna prófkjörum flokkanna, sem útheimta gríðarleg útgjöld kandídatanna. Þessi skortur á fulltrúum láglauna- og minnihlutahópa virðist fara saman við allt of lágt hlutfall kvenna á þingi. Hvernig væri þá að ,,samþætta kynjuð sjónarmið" við aukna þátttöku láglaunakvenna í stjórnmálum? Einu konurnar á Alþingi sem ég man eftir úr verkalýðsstétt eru Margrét Frímannsdóttir og Jóhanna Sigurðardóttir. Og önnur þeirra hættir í vor!
Í annan stað: Með því að einblína á hlut kynjanna í stjórnum fyrirtækja horfa kvenfrelsissinnar framhjá alverstu aukaverkun kapítalismans. Þeirri staðreynd að í dag ráða eigendur og fjárfestar að baki fyrirtækjunum einir vali í stjórnir fyrirtækisins. Hvernig hafa kapítalistarnir skipað stjórnirnar hingað til? Jú, í eigin þágu og atvinnurekendanna. Með því að halda launafólki frá ákvarðanatöku í stjórnum fyrirtækjanna standa þeir vörð um óbreytt ástand þar sem hagsmunir fjármagnsins ganga ætíð fyrir hagsmunum þeirra sem með vinnu sinni skapa verðmætin.
Þetta myndi ekkert breytast þótt við hefðum alltaf fiftí-fiftí karla og konur í stjórnunum. Ekki nema við förum raunverulega að vinna gegn þessu alræði kapítalsins, þannig að skylt verði að skipa stjórnirnar til helminga fulltrúum atvinnurekenda og launþega. Aðeins þannig er hægt að tala um jafnræði og jafnari dreifingu valds í atvinnulífinu og þjóðfélaginu öllu. Atvinnulýðræði kemur konum að sjálfsögðu til góða og örugglega myndi hlutfall þeirra í stjórnum fyrirtækja hækka til muna ef alræði auðstéttanna yrði aflétt í fyrirtækjunum. Þess vegna eiga femínistar að berjast fyrir atvinnulýðræði og jafnari skiptingu valdsins.
Gamli Kvennalistinn var nauðsyn á sínum tíma. Hann breytti stjórnmálaumræðu til góðs hér á landi og geta þær konur sem að honum stóðu verið stoltar af arfleifð hans. En þeir flokkar sem urðu til við uppstokkun vinstri vængsins fyrir átta árum síðan eru að stærstum hluta byggðir á hugsjónum sósíaldemókrata og sósíalista, einkum Samfylkingin. Kvennalistinn - ásamt umhverfisverndarfólki - hefur sett jákvæðan svip á hina nýju flokka vinstrimanna á Íslandi. En kvenfrelsissinnar verða að gæta sín á því að bera virðingu fyrir arfleifð gömlu A-flokkanna. Það verður ekki jafnrétti nema jafnaðarstefnan ráði för. Frelsi, jafnrétti og bræðra/systralag er forsenda jafnréttis kynjanna - ekki öfugt.
Er nema von að við kratar og kommar spyrjum: Er Kvennalistinn búinn að yfirtaka vinstriflokkana?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.1.2007 | 14:51
Svartur dagur á Alþingi!
Í þessum töluðu orðum er verið að greiða atkvæði um hið ógeðfellda RÚV ohf - frumvarp þrjóskrar konu sem ber titilinn menntamálaráðherra.
Þetta er eitt ljótasta frumvarp sem komið hefur á Alþingi - miklu ljótara en fjölmiðlafrumvarpið hið fyrsta. Það er verið að einkavæða Ríkisútvarpið. EINKAVÆÐA ÞAÐ! Punktur.
En stjórnarandstaðan hefur reynt allt til að koma vitinu fyrir stjórnarliðið. Allt kom fyrir ekki.
Hvað sem líður öllu umtali um málþóf þangað til í gær, þá er ljóst að stjórnarandstæðingar hafa staðið sig með prýði í umræðunum og hafa málstaðinn allan sín megin.
En mesta skömmin í þessu ömurlega máli hlýtur vitaskuld Framsókn sem enn einu sinni leggst á belginn með bossann uppí loft!
Nýju RÚV-lögin verða Framsókn til háðungar svo lengi sem hún lifir!
En getum huggað okkur við það að þessum óskapnaði verður umsvifalaust kastað útí ystu myrkur þegar stjórnarandstaðan kemst að kjötkötlunum í vor!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.4.2007 kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2007 | 14:30
Kjaftshögg!
Ekki var gaman að stökkva niður áðan og ná í Fréttablaðið. Þar kom fram að fylgi míns flokks - Samfylkingarinnar - er í lágmarki núna. Aðeins 21,5 % kjósenda styðja hana, ef marka má þá sem taka afstöðu. Þetta yrði að sjálfsögðu ömurleg niðurstaða ef svona færi þann 12. maí. Þó vissulega sé ánægjulegt að stjórnin sé fallin samkvæmt könnuninni.
Á þessu held ég að séu nokkrar skýringar:
Í fyrsta lagi er Ingibjörg vondur stjórnarandstöðupólitíkus - kann eiginlega ekki að vera í stjórnarandstöðu, svipað og Davíð Oddsson. Hún er mjög hæfileikarík á margan hátt en getur einhvern veginn ekki talað mönnum baráttuanda í brjóst líktog Steingrímur Joð, og Össur meðan hann var formaður Sf.
Í annan stað: Virkjanamálin ætla að verða flokknum erfið. Við sitjum uppi með það að hafa samþykkt Kárahnjúkadelluna á sínum tíma. Og nú þegar Sf. er að reyna að byggja upp stefnu sem er þóknanlegri umhverfinu, þá þyrfti helst að setja múl á ýmsa landsbyggðarþingmenn flokksins!
Í þriðja lagi: Samfylkingin er of póstmódernískur flokkur að mörgu leyti. Það er alltof mikið reynt að gera öllum til hæfis og það kemur út í lausbeislaðri stefnu gagnvart kjósendum. Breiddin sem er kostur míns flokks er jafnframt ókostur hans.
Í fjórða lagi: Blairisminn svokallaði hefur skaðað flokkinn. Til dæmis tal Björgvins G. Sigurðssonar um skólagjöld og tal varaformannsins Ágústs Ólafs um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Þó held ég að þessi New-Labour pólitík sé á undanhaldi í flokknum. Þannig munaði nánast engu að heilbrigðiseinkarekstrarplagg á seinasta landsþingi Ungra jafnaðarmanna væri fellt (var sjálfur á því þingi). Á landsþinginu 2005 vorum við frekar fá sem vorum á móti einkavæðingunni en ári síðar vantaði herslumuninn á að félagslegur rekstur heilbrigðisþjónustunnar yrði ofan á.
Nú er bara að spýta í lófana og láta ekki hugfallast! Þó ég sé stundum óánægður með flokkinn minn þá reyni ég að standa með honum í blíðu og stríðu. En ef úrslitin verða svona, þá er ég hræddur um að frú Ingibjörg verði að láta sér lynda hlutverk venjulegs fótgönguliða í flokknum.
Það hefði án efa verið heilladrýgra að leyfa félaga Össuri að verma formannsstólinn áfram!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.4.2007 kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)