6.4.2007 | 17:21
Mega engir dagar vera öðruvísi en aðrir?
Óskaplega eru nú þeir hjá Vantrú orðnir þreytandi í trúleysistrú sínni. Nú er ég enginn ofsatrúarmaður - frekar svona efasemdar-kristinn maður ef svo mætti segja. En það er magnað hvað einn selskapur getur látið helgidaga fara í taugarnar á sér!
Nú er ég ekki að segja að föstudagurinn langi hafi alltaf verið skemmtilegur dagur. Og í mínum uppvexti tóku menn þennan dag kannski full hátíðlega. Páskarnir voru reyndar almennt mesta lokunar-orgía ársins. Allt var læst og lokað. Vissulega mátti aðeins slaka á sumu í þeim efnum. Enda hef ég alltaf verið talsmaður þess að jólin ættu að njóta meiri friðhelgi en páskarnir, þar sem þau eru jú mikilvægasta og mesta hátíð ársins fyrir flestum.
Samt finnst mér allt í lagi þótt einhverjar hömlur séu á ,,athafnafrelsi" á stórhátíðisdögum. Þessir dagar eru til þess ætlaðir að fólk eigi sitt frí - líka fólk sem vinnur í verslunum. Mér fannst það til dæmis slæmt þegar Alþingi rýmkaði helgidagalöggjöfina fyrir tveimur-þremur árum og gekk meira að segja lengra en samtök kaupmanna höfðu lagt til. Þau voru aðeins að biðja um heimild til opnunar á hvítasunnunni (sem mér finnst allt í lagi) en ekki á föstudaginn langa og páskadag.
Þessa páska er allavega opið alla hátíðisdagana í klukkubúðunum svokölluðu. Nú veit ég að í þessum verslunum vinnur upp til hópa ungt fólk sem eflaust er fegið að fá böns af stórhátíðamonníi í buddurnar sínar á dögum sem þessum.
En fordæmið sem þetta gefur er slæmt. Þetta snýst nefnilega ekki bara um trúfrelsi og athafnafrelsi, ágætu Vantrúarklerkar! Heldur líka um það hvort vinnandi fólk í landinu muni áfram njóta einhverrar friðhelgi frá vinnuveitendum sínum á hátíðisdögum, kirkjulegum jafnt sem veraldlegum.
Því miður er alltaf verið að kroppa í þessa daga. Ýmist í nafni trúfrelsis eða ,,aukinna krafna viðskiptavina um þjónustu". Nú er svo komið að jóladagur er einn eftir. Nú má hafa opið alla páskana ef svo ber undir í verslunum undir ákveðinni stærð og aðfangadagur er af óskiljanlegum ástæðum verslunardagur til hádegis eða jafnvel fram á miðjan daginn (í Danmörku er lokað á aðfangadag). Annar í jólum er svipaður og páskarnir - opið í klukkubúðum en lokað í stórmörkuðum.
Ef á annað borð er opið á helgidögum, þá eiga eigendur verslana, bíóhúsa og kaffihúsa að standa vaktina. En það er ekki að mínu mati hægt að skikka fólk - sem ekki vill vinna á þessum dögum - til þess að vinna. Það er hættan við breytinguna sem orðin er á seinustu árum. Að allir dagar verði eins.
Helgidagalöggjöfin er ekki bara spurning um kirkjulegar stórhátíðir og takmarkanir á verslun, viðskiptum og ýmsum skemmtunum - heldur líka vinnuréttarlegt málefni. Sósíalistanum mér finnst það reyndar ansi magnað hvað mörgu fólki sem líka kallar sig sósíalista - til dæmis Ungum vinstri-grænum - er sama um það þó allt sé opið á þessum dögum. Vilja menn virkilega ekki hafa neina daga á árinu í friði frá þeim hinum sama kapítalisma sem menn tala sig hása á móti?
Vinstriflokkarnir hafa reyndar á seinni árum farið að höfða æ meira til menntafólks á kostnað verkafólks, sem þó átti sinn þátt í að stofna hreyfingu jafnaðarmanna fyrir rúmum níutíu árum. Enda finnst mér einsog vinstri sinnaðir stjórnmálamenn hafi að sumu leyti fjarlægst alþýðuna - og reyndar verkalýðsforystan líka. Þess vegna er hætt við því að menn sofi á verðinum gagnvart því olnbogarými sem atvinnurekendur hafa skapað sér undanfarin ár.
Þó menn séu á ekki eitt sáttir við guð - sem John Lennon sagði að væri hugtak til þess að mæla sársauka okkar með - þá er alveg óþarfi að gera lítið úr hátíðis- og tyllidögum sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill eiga í friði.
Vantrú heldur bingó á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 19.4.2007 kl. 22:06 | Facebook
Athugasemdir
Þó Vantrúarmenn séu að halda bingó, þá er bingó ekki það sem málið snýst um. Þeir eru í grundvallaratriðum mótfallnir helgidagalöggjöfinni, sem er eðlilegt í ljósi skoðana þeirra á trúmálum. Enda sé ég ekki að bingó eyðileggi helgidagafriðinn og má vel endurskoða slík ákvæði laganna.
Ástæðan fyrir stuðningi mínum við helgidagalögin og þ.a.l. andstöðu minni við of mikla rýmkun á þeim, er sú að ég vil ekki að atvinnurekendur geti nýtt sér heimildir til þess að þvinga fólk til vinnu á dögum sem eru viðurkenndir sem mestu frídagar og hátíðisdagar á árinu.
Þetta hefur miklu minna með trú að gera að mínu mati - þó ég sé nú samt hlynntur löggjöfinni út af því hversu mikilvæg jól og páskar eru fyrir okkar menningu og tilbreyting frá hversdagsleikanum. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr þá vill fólk eiga frí á stórhátíðum og þess vegna vil ég að sá réttur sé verndaður.
Og svo er þetta líka spurning um að ekki sé vaðið endalaust á skítugum skónum yfir verslunarfólk og starfsfólk ýmissa þjónustufyrirtækja - sem nú þegar býr við meiri vinnuskyldu en við sem vinnum ekki um helgar (sbr. ákvæði um vinnu annan hvorn laugardag í atvinnuauglýsingum frá mörgum verslunum og stórmörkuðum). Það er auðvitað óþolandi þegar fólk getur átt von á því að vinnuveitandinn snúi uppá handlegginn á því alla daga ársins nema einn.
Við megum alveg hugsa um það að þegar við erum í fríi, þá getum við ekki ætlast til þess að það séu alltaf einhverjir sem þurfi að fórna sér svo við getum komist í búð eða bíó alla daga! Verslun er ekki þannig starfsemi að hún sé lífsnauðsynleg á dögum einsog í dag. 10-11 er ekki sambærilegt við Landspítalann.
Hákon Baldur Hafsteinsson, 6.4.2007 kl. 18:06
Vil reyndar bæta því við að ég er sammála þér með 1. maí og 1. desember. Þess vegna væri alveg athugandi að búa til einhverja frídagalöggjöf sem tæki bæði til kirkjulegra og veraldlegra hátíðisdaga.
Hákon Baldur Hafsteinsson, 6.4.2007 kl. 18:10
Hákon þú átt bráðlega 10 ára útskriftarafmæli frá FVA. http://fvaalumni.bloggar.is/
Viktor Elvar (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 14:52
Takk fyrir þetta Viktor! Var einmitt búinn að fá bréfið frá Herði skólameistara og svo hafði Eiríkur sagt mér frá þessu nokkru áður. Gaman að það sé komin bloggsíða af þessu tilefni. Hlakka mikið til!
Hákon Baldur Hafsteinsson, 13.4.2007 kl. 01:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.