28.7.2007 | 02:41
,,Það er greit.....
...að elska gálu einsog þig!"
Tvöþúsundogsjöversjónin af Það er gott að elska er ekki eftir Ásbjörn Kristinsson Morthens, heldur Magnús Þór Jónsson!
Meistarinn í banastuði af nýju plötunni sinni. Morthens hlýtur að vera kominn með ansi mikla verki í hreðjarnar eftir öll spörkin frá Gasaranum, samanber - sem dæmi - þessar línur úr laginu um Flóabitanótt:
[.....]
forðum gekk ég út með gramm í vasa
andesfjallaloftið grænna grasa
fylltust gímöld minna nasa
forðum út ég gekk
[......]
það verða tíuþúsundplatnajól
enginn krókur engin ól
ekkert klifur upp á stól
því þetta verða tíuþúsund
[......]
lifandi heilt komst ég í gegnum kóla
en það dugir ekki að stóla
á þá stráka sem misnota njóla
lifandi
Það er ljóst að ekki verður meira sungið um Bubba, Megas og Hörð Torfa, einsog menn undir nafninu Bláir draumar gerðu forðum daga. En ætli ég láti ekki eiga sig að birta þann kveðskap hér á síðunni!
Athugasemdir
Það voru menn í hljómsveit sem bar nafnið Dýrið gengur laust. Lagið heitir hinsvegar Bláir draumar. Gamall spilafélagi undirritaðs af Skaganum var í þessu bandi. Kveðskapur þeirra var með afbrigðum smekklaus.
Orri Harðarson, 28.7.2007 kl. 10:30
Já alveg rétt. Mig misminnti aðeins með nafnið á þessari hljómsveit. Hún gekk ansi verulega langt í þessum texta, svo ekki sé meira sagt....
Hákon Baldur Hafsteinsson, 28.7.2007 kl. 13:24
Get ég séð þann texta einhvers staðar?
svavar (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.